Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Vinnustaða ÖBÍ

Markmið með rekstrinum er að veita fólki með fötlun tímabundna vinnu í formi verkþjálfunar og/eða vinnu til frambúðar. Fyrirtækið er í eigu Öryrkjabandalags Ísland og rekið á ábyrgð þess.

Starfsemi fyrirtækisins er innflutnings-, iðnaðar- og þjónustustarfsemi. Hjá því starfa að jafnaði 36 fatlaðir starfsmenn í 18 stöðugildum og 8 ófatlaðir í 7,5 stöðugildum.  

Starfsemi:

Örtækni: Framleiðir og selur fjölmargar gerðir af tengiköplum, svo sem alla tengikapla fyrir tölvur og tæki tengd þeim. Innflutningur og sala á skildum búnaði. Samsetning og lóðning á prentplötum, ásamt vinnslu á ýmsum tilfallandi verkefnum fyrir fyrirtæki í rafmagns- og rafeindaiðnaði.

Saumastofa ÖBÍ: Framleiðir og selur léttan vinnufatnað, jakka, sloppa, svuntur og buxur fyrir fólk í framreiðslu-, umönnunar- og þjónustustörfum. Helstu viðskiptavinir eru dvalarheimili, heilsustofnanir, hótel, gistiheimili, tannlæknar, veitingastaðir og sjúkrastofnanir. Framleiðsla og sala á fermingar- og kórkirtlum.

Innflutningur og sala á efnum í léttan vinnufatnað.

Ræstingadeild: Annast daglegar ræstingar m.a á sameign í háhýsum og tengibyggingu í Hátíni 10, húsnæði Vinnustaða ÖBÍ og húsnæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð 14, í Hafnarfirði og á Reykjavíkurflugvelli.

Vinnustaðir Öryrkjabandalagsins  - Hátúni 10 - 105 Reykjavík - Sími 552 6800